Terms of service

Upplýsingar um fyrirtækið

Hraustari ehf. / Boxbúðin
Kennitala: 451206-1250
VSK-númer: 92664
Reikningsnúmer: 0535-05-401322

Heimilisfang: Smiðjuvegur 28, græn gata
Tölvupóstur: boxbudin@boxbudin.is

Hraustari ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, og til að hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager hefur þjónustufulltrúi samband og tilkynnir áætlaðan afhendingartíma. Um allar pantanir sem Íslandspóstur dreifir gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts. Hraustari ehf. ber því enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Týnist vara í pósti eða verði hún fyrir tjóni frá því að hún er send frá Hraustara ehf. er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Heimsending: Pósturinn sér um útkeyrslu á vörum fyrir boxbudin.is. Berist pöntun eftir kl. 12:00 fer hún í ferli hjá Íslandspósti næsta virka dag.

Frí heimsending er á pöntunum að upphæð 25.000 kr. eða meira. Það gildir ekki um boxpúða.

Verð á vöru og sendingarkostnaður

Öll verð í vefversluninni eru með 24% virðisaukaskatti. Sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram og er reiknaður í greiðsluferlinu. Við sendum vörur með Póstinum:

  • Pakki í póstbox: 1.500 kr.
  • Pakki heim að dyrum: 2.250 kr.
  • Boxpúðar: 5.980 kr.

Sé verslað fyrir 25.000 kr. eða meira er heimsending frí, nema á boxpúðum.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur gegn framvísun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð og í fullkomnu lagi. Við skil er miðað við upprunalegt verð vörunnar, nema hún sé á útsölu eða sértilboði þegar henni er skilað; þá er miðað við verð hennar þann dag. Vilji kaupandi ekki skipta vörunni í aðra vöru er gefin út inneignarnóta eftir að varan hefur borist okkur. Inneignarnótan er í formi kóða sem notaður er hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavini boðin ný vara í staðinn og við greiðum allan kostnað sem fylgir sendingunni.

Trúnaður (öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða undir engum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.