Fara í vöruupplýsingar
Boxbúðin Vafningar 4,5 m
1.590 kr
Frí heimsending á pöntunum yfir 25.000 kr.
Sótt: yfirleitt tilbúið eftir 1–2 virka daga · Póstbox/heimsending: 1–3 virkir dagar · Póstbox frá 940 kr.
14 daga skilaréttur á ónotuðum vörum
4,5 metra vafningar sem eru hannaðir fyrir Boxbúðina. Fást í svörtu, bláu, rauðu og hvítu.
Svona vefur þú hendurnar
Það eru til margar aðferðir, en hér er einföld leið fyrir þá sem eru að byrja:
- Á enda vafningsins er lykkja: settu hana utan um þumalinn.
- Vefðu 3–4 hringi um úlnliðinn.
- Vefðu næst um hnúana. Krepptu hnefann á meðan svo vafningurinn verði ekki of þröngur.
- Legðu vafninginn á milli fingranna, líka við þumalinn.
- Farðu aftur niður að úlnliðnum og lokaðu með franska rennilásnum.
Þjálfarinn þinn getur sýnt þér rétta aðferð.
Ráð: Ekki rúlla vafningunum upp strax eftir æfingu. Leyfðu þeim að lofta, þvoðu þá og rúllaðu þeim ekki upp fyrr en þeir eru orðnir þurrir.