Leone GOAT Boxhanskar
Frí heimsending á pöntunum yfir 25.000 kr.
Sótt: yfirleitt tilbúið eftir 1–2 virka daga · Póstbox/heimsending: 1–3 virkir dagar · Póstbox frá 940 kr.
14 daga skilaréttur á ónotuðum vörum
GOAT – Greatest Of All Time. Úrvals boxhanskar frá Leone 1947 fyrir þá sem æfa á hæsta stigi. Þeir byggja á nærri 70 ára reynslu Leone af hönnun boxhanska.
Hanskarnir verja hnúana vel og halda úlnliðnum stöðugum, án þess að hnefinn eigi erfitt með að lokast. Tilfinningin er þétt við högg, hvorki of mjúk né of stíf.
Bólstrunin er í nokkrum lögum með ólíkum þéttleika. Lögin dreifa höggorkunni smám saman svo hanskinn helst þéttur á púðanum, í mits og í sparri.
Stöðugur úlnliður
- 70% þykkari bólstrun við úlnliðinn en almennt gerist
- 40% lengri lokun sem vefst utan um úlnliðinn og framhandlegginn
- Höndin hreyfist frjálst en úlnliðurinn helst á sínum stað
Snið og þumall
Hanskinn er þéttur og fylgir lögun handarinnar. Lítið tómarúm er inni í honum svo hnefinn lokast fyrr og með minni áreynslu. Þumallinn liggur þétt að hanskanum, sem eykur öryggi í sparri.
Efni
- Ytra byrði: 100% full-grain kúaleður, gæðamesta og endingarbesta leður sem völ er á
- Fóður: 100% pólýester
- Bólstrun: 85% latex og 15% pólýúrethan
- Lokun: Frönskur rennilás (velcro)
- Hannaðir á Ítalíu