Leone lyktareyðandi sprey

Leone Lyktareyðandi sprey

2.590 kr
Fara í vöruupplýsingar
Leone lyktareyðandi sprey

Leone Lyktareyðandi sprey

2.590 kr

Frí heimsending á pöntunum yfir 25.000 kr.
Sótt: yfirleitt tilbúið eftir 1–2 virka daga · Póstbox/heimsending: 1–3 virkir dagar · Póstbox frá 940 kr.
14 daga skilaréttur á ónotuðum vörum

Burt með vonda lykt úr hönskum, töskum og skóm.

Lyktareyðandi spreyið frá Leone eyðir lyktinni við upptökin í stað þess að fela hana með ilmefnum. Formúlan er að mestu vatn (um 98%) og bindur sameindirnar sem valda lyktinni. Spreyið myndar hvorki gufur né gas, er öruggt í notkun, niðurbrjótanlegt og umhverfisvænt. Það skilur ekki eftir sig bletti og er sjálft lyktarlaust.

Hentar vel fyrir boxhanska, legghlífar, höfuðhlífar, íþróttatöskur, bakpoka, æfingaskó og æfingafatnað, og allan annan búnað sem verður fyrir svita.

Eiginleikar

  • Eyðir lykt í stað þess að fela hana með ilmefnum
  • Vatnsgrunnur, öruggt í meðförum
  • Niðurbrjótanlegt og umhverfisvænt
  • Myndar engar gufur eða gas við notkun
  • Bag-On-Valve tækni: virkar í hvaða stöðu sem er, líka á hvolfi, og nær nánast öllu innihaldinu úr brúsanum

Notkun

  1. Hristu brúsann vel.
  2. Úðaðu beint á búnaðinn úr um 20–30 cm fjarlægð.
  3. Leyfðu að þorna.

Þér gæti einnig líkað